|
|
 Brennivínsdraugurinn sómir sér vel og horfir glettinn yfir á barinn.
 Útsýnið er frábært og í raun mun magnaðra eftir sem því sem veður versnar.
 Horft eftir langborðinu og í áttina að barnum og móttökunni inná Draugasetrið sjálft.
|
Barinn
Draugabarinn er um 250 m2 salur sem komið er í áður en farið er inná Draugasetrið. Barinn og allar innréttingar eru mjög sérstakar og gefa ágæta vísbendingu um hvað býður þeirra gesta sem leggja í að fara inná Draugasetrið sjálft. Barinn sjálfur er að mestu smíðaður úr rekavið sem og bekkir og borð. Gólfið er hellulagt með gömlum gangstéttarhellum og með sérstöku litarvali á veggjum rennur þessi blanda einkar vel saman.
Tónleikar og uppákomur
Draugabarinn var fyrst og fremst hugsaður sem aðstaða fyrir gesti Draugasetursins en hann hefur einnig notið mikilla vinsælda sem tónleikastaður og fyrir hinar ýmsu uppákomur, rímukvöld, sögukvöld og fl. Haustið 2005 var barinn stækkaður um 80 m2 og hefur tónleikaaðstaðan bæst til muna við stækkunina.
Útsýni
Útsýnið frá barnum er frábært, Stokkseyrafjaran, gamla bryggjan og svo Atlantshafið svo langt er augað eygir. Þegar fjarar, sést vel hversu erfið gamla innsiglingin hefur verið, inn á milli skerjanna.
Draugar
Inni á Draugabarnum eru nokkrir draugar og ber þar helst að nefna Brennivínsdrauginn sem situr uppi á rjáfri í einu horninu. Þetta er nokkuð vænn draugur, danskur að uppruna og þótti honum sopinn harla góður. Einnig er að finna matardisk Kampholtsmóra en forráðamenn setursins gæta þess vandlega að alltaf sé matur á disknum hans móra og að hann fái alltaf vatn að drekka. Sagan hefur sýnt að móri hefur verið mun hliðhollari þeim sem hann fylgir ef honum er gefið að borða og slíkt mun m.a. hafa verið gert meðan hann bjó í Kampholti.
Sjódraugur - Móramjólk - Skotta - Uppvakningur - Útburður
Á barnum er hægt að kaupa mjöð í dósum til að hafa með inná Draugasetrið vilji menn eitthað styrkjandi. Þar eru einnig seld hin ýmsu draugaskot t.d.: Sjódraugur, Móramjólk, Skotta, Uppvakningur og Útburður auk ýmissa annara drykkja. Til þessa hefur engum þótt Uppvakningur góður og eftir að hafa náð andanum aftur skortir mönnum orð til að lýsa þessum drykk. Á það einnig við um þann er þetta skrifar svo ekki verður farið nánar út í þá sálma.
Draugabarinn er opinn á sama tíma og Draugasetrið nema þegar annað er auglýst sérstaklega. Eins er hægt að semja um afnot af salnum fyrir uppákomur af ýmsu tagi.
|