Slide Draugasetrið er tilvalin
staður fyrir þá sem ... þora!
HÓPABÓKANIR
Safnið er lokað tímabundið. Aðeins opið fyrir bókanir fyrirfram.

Draugasetrið

Ísland á sér aðra vídd þegar kemur að draugum, álfum og huldufólki. Á draugasetrinu getur þú myndað þér skoðun á því hvort draugar séu til eða ekki. Safnið er einstakt hér á landi og allt er gert til þess að endurvekja upplifun þeirra sem hafa séð eða komið í nánd við heim hins óútskýrða. Boðið er upp á ótrúlegar sögur með ýmiskonar uppstillingum og brellum sem fá hárin til þess að rísa. Draugsetrið er ekki fyrir viðkvæma!

Slide Á Draugasetrinu kynnum við fyrir gestum brot af íslenskri draugamenningu, þeim hluta sem mótast af hugmyndaflugi, náttúru og hæfileikunum sem eru ræktaðir út frá því að segja sögur.

Setrið

Gestir fá meðferðis 24 draugasögur sem leiða þá í gegnum safnið. Mikilvægt er að gefa öllum draugum á Draugasetrinu góðan gaum þar sem óvæntir atburðir geta komið fram á hverju sögustígi.

Draugasetrið er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára. Öll börn undir 12 ára aldri eru á ábyrgð foreldra.

Draugasetrið er um 1.000 m2 völundarhús og þar sem talsvert myrkur er í sumum rímunum er mikilvægt að hlusta eftir sögunúmerum í byrjun hverrar sögu.