Description
Ísland á sér aðra vídd þegar kemur að draugum, álfum og huldufólki. Á draugasetrinu getur þú myndað þér skoðun á því hvort draugar séu til eða ekki. Safnið er einstakt hér á landi og allt er gert til þess að endurvekja upplifun þeirra sem hafa séð eða komið í nánd við heim hins óútskýrða. Boðið er upp á ótrúlegar sögur með ýmiskonar uppstillingum og brellum sem fá hárin til þess að rísa. Draugsetrið er ekki fyrir viðkvæma!
Gestir fá meðferðis 24 draugasögur sem leiða þá í gegnum safnið. Mikilvægt er að gefa öllum draugum á Draugasetrinu góðan gaum þar sem óvæntir atburðir geta komið fram á hverju sögustígi.
Draugasetrið er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára. Öll börn undir 12 ára aldri eru á ábyrgð foreldra.
Draugasetrið er um 1.000 m2 völundarhús og þar sem talsvert myrkur er í sumum rímunum er mikilvægt að hlusta eftir sögunúmerum í byrjun hverrar sögu.